Farsæld barna
Farsældarlögin
Tekið hafa gildi lög sem styðja við farsæld barna. Þau eiga að sjá til þess að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. Með því að tengja þjónustuna saman og vinna í sameiningu að farsæld barna verður auðveldara fyrir börn og foreldra að fá aðstoð við hæfi.
Stigskipting þjónustu
Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að sú þjónusta sem barnið fær er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.
1. stig
Fyrsta stigið skiptist í tvö undirstig – grunnþjónustileg öllum börnum í ungbarnavernd, leik-, grunn- og framhaldsskólum. Grunnþjónustan skiptir miklu máli fyrir farsæld barna og með því að grípa snemma inn í getum við komið í veg fyrir ýmiss konar erfiðleika síðar meir.
Fyrsta stigið skiptist í tvö undirstig – grunnþjónustu og fyrsta stigs þjónustu. Grunnþjónusta er aðgengileg öllum börnum í ungbarnavernd, leik-, grunn- og framhaldsskólum. Grunnþjónustan skiptir miklu máli fyrir farsæld barna og með því að grípa snemma inn í getum við komið í veg fyrir ýmiss konar erfiðleika síðar meir.
2. stig
Á öðru stigi er veittur einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur en sá sem veittur er á fyrsta stigi. Til að tryggja farsæld barns eru úrræðin sérhæfðari og þjónustan fjölbreyttari. Þjónusta á öðru stigi er veitt þegar úrræði á fyrsta stigi duga ekki til eða hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Þörfin fyrir þjónustu á öðru stigi getur til dæmis verið tilkomin af heilsufarslegum, félagslegum eða námslegum aðstæðum. Má þar nefna sem dæmi sérdeildir eða starfsbrautir í skólum og ýmsa stuðningsþjónustu á vegum félags- og skólaþjónustu.
3. stig
Á þriðja stigi er veittur sérhæfðari stuðningur til að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin. Barn sem nýtur þjónustu á þessu stigi hefur að jafnaði flókinn og fjölþættan vanda og mikla umönnunarþörf. Barnið er þá í aðstæðum þar sem skortur á viðeigandi stuðningi og úrræðum getur haft alvarlegar afleiðingar og ógnað heilsu þess og þroska. Má þar nefna sem dæmi vistunarúrræði á grundvalli barnaverndarlaga, umfangsmikilnn og fjölþættan stuðning við fötluð börn og langvarandi sjúkrahúsdvöl barna.
Tengiliður
Tengiliður skal vera aðgengilegur öllum börnum og foreldrum og hefur hann viðeigandi þekkingu til að vera innan handar og aðstoða við að sækja viðeigandi þjónustu við hæfi. Þannig geta foreldrar og börn leitað til eins aðila sem hefur yfirsýn yfir allt þjónustukerfið.
Tengiliður farsældar á Barnabóli er Halldóra Friðbergsdóttir, halldoraf@langanesbyggd.is