top of page

Daglegt starf

Hér má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir daglegt starf á Barnabóli

Fatnaður 

Klæðnaður barnanna þarf að vera í samræmi við veðurfar og hafa ber í huga að veður getur breyst snögglega. Nauðsynlegt er að hafa aukafatnað í leikskólanum. Aukaföt barnanna eru geymd í plastkössum á hillu í forstofunni, og mikilvægt að bæta í þá eftir þörfum og yfirfara reglulega.Í leikskólanum er unnið með ýmis efni og áhöld sem geta skemmt föt. Vinsamlegast gætið þess að barnið sé ekki í fötum sem ykkur er sérstaklega sárt um eða hindra þátttöku barns í verkefnum.

 

Fatamerkingar 

Merkja þarf allan fatnað, sérstaklega mikilvægt að merkja útifatnað. Það getur sparað ykkur peninga og okkur fyrirhöfn. Mjög auðvelt er að fá alls kyns límmiða og tilbúna merkimiða til að festa á fatnað. 

Svefn og hvíld

Eftir hádegismat er farið í hvíld á báðum deildum. Fyrirkomulag hvíldar fer eftir aldri og þroska barnanna á hverri deild, yngri börnin sofa flest, en þau eldri hvíla sig og hlusta á sögur.  Svefn barna er í samvinnu við foreldra og best er að ræða þarfir og óskir við starfsfólk deilda. Svefn er skráður í Völu ásamt því hve vel barn borðar. 

Bleyju áskrift

Mögulegt er að vera í bleyju áskrift fyrir 2400.- á mánuði. Þá sér leikskólinn um að kaupa bæði bleyjur og blautklúta. 

Veikindareglur

Mikilvægt er að hringja eða skrá  í Völu appinu frí eða veikindi barna. Sérstaklega er það mikilvægt ef barnið ykkar veikist af barnasjúkdómum eða öðrum smitsjúkdómum svo við getum gert öðrum foreldrum viðvart og þeir séu þá vakandi fyrir því. Leikskólinn er ætlaður frískum börnum og tekur því ekki við börnum sem eru alveg að veikjast eða orðin veik. Þetta á einnig við þó að barnið sé hitalaust s.s. mikið kvefað eða með magapest. Eftir veikindi getur barnið fengið að vera inni einn dag enda sé það búið að vera hitalaust heima í lágmark einn dag. Við sérstakar aðstæður gerum við að sjálfsögðu undantekningar og best er að ræða það við deildarstjórann.

bottom of page