top of page

Foreldrahandbók Barnabóls 

Leiðarljós okkar í foreldrasamstarfi eru samvinna, traust, og jákvæðni. Lögð er áhersla á að foreldrar og starfsfólk leikskólans vinni saman og hafi ávallt velferð barnanna í fyrirrúmi. Einnig höfum við lagt áherslu á samskipti við báða foreldra. Báðir foreldrar eru hvattir til að hafa virkt netfang í leikskólanum þannig að allar upplýsingar, fundarboð, fréttabréf og viðhorfskannanir fari til beggja foreldra. Þegar leitað er eftir foreldrum til setu í foreldraráðum eru bæði feður og mæður hvattir til að gefa kost á sér og þá eru báðir foreldrar hvattir til að mæta í foreldrasamtöl.

bottom of page