top of page

Mat á skólastarfinu

Mat á skólastarfi er skipt í innra og ytra mat. Innra mat fer fram innan skólans og er því sjálfsmat skólans, það er unnið af starfsfólki skólans. Markmið innra mats er að tryggja að starfsemi skólans sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrá. Innra mat á að stuðla að umbótum í starfi skólans og að efla skólaþróun. Með ytra mati er átt við úttekt á starfsemi stofnunar sem unnin er af utanaðkomandi aðilum. 

Ytra mat

Ytra mati sveitarfélaga er sinnt m.a. með foreldrakönnunum og starfsmannakönnunum annað hvert ár. Langanesbyggð hefur nýtt þjónustu Skólapúlsins og er það mjög gott til að geta borið sig saman við aðra skóla. Sveitarfélagið á að fylgja eftir innra og ytra matið þannig að slíkt mat leiði til umbóta í skólastarfi. 

Ytra mat ráðuneytisins gerir áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir á skólastarfi samkvæmt lögum. 

innra mat

Innra mat í leikskóla er skipulagt sjálfsmatsferli þar sem starfsfólk leikskólans metur eigin starf og starfsemi skólans. Þetta er liður í gæðaþróun og skyldubundið samkvæmt lögum.

Í innra mati safnar starfsfólk upplýsingum um eigið starf með ýmsum aðferðum, svo sem athugunum, viðtölum og spurningakönnunum. Niðurstöður eru síðan rýndar í samvinnu innan starfshópsins og notaðar til að bæta kennsluhætti og starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að auka vitund um styrkleika starfseminnar og tækifæri til umbóta.

Markmið innra mats er að efla faglega umræðu um skólastarf, tryggja gæði náms og umönnunar og stuðla að stöðugum umbótum. 

Matsteymi leikskólans

Matsteymi leikskólans er skipað þremur starfsmönnum og vinna þeir starfsáætlun fyrir teymið og svo matsáætlun út frá langtímaáætlun innra mats sem nær yfir fjögurra ára tímabil. 

Matsteymið tryggir að framkvæmd og ábyrgð aðgerða sé í höndum starfsfólks skólans en skólastjóri er ábyrgur fyrir innra mati skólans. Í lok skólaárs skilar matsteymið greinagerð um innra mat og kemur með umbótaáætlun, sé þess þörf.  

Matsáætlun

Matsáætlun skólans er skjalfest og markviss aðgerðaráætlun sem lýsir því hvernig á að meta stafssemi og/eða verkefni.
Langtímaáætlun innra mats er grunnurinn og þar inni er fjögurra ára tímabil. Tilgangurinn með matsáætluninni er að
tryggja að allir þættir skólastarfsins séu metnir og markmiðin skýr, skipulögð, markviss og mælanleg – með það að
leiðarljósi að stuðla að faglegu starfi og umbótum ef þörf er á.

Matsáætlunin inniheldur:
Matsþætti – Skilgreinir hvað á að meta.
Markmið – hvað stefnt er að í hverjum matsþætti.
Aðgerðir – þær aðgerðir sem ákveðið hefur verið að ráðast í til að ná markmiðunum.
Ábyrgðaraðila og framkvæmdaraðila – hver ber ábyrgð á framvindu og hver framkvæmir aðgerðirnar.
Tímalínu – hvenær aðgerðir hefjast og ljúka.
Viðmið um árangur og aðferðir við mat – hvernig árangur verður metinn og hvenær mat fer fram.

Matsáætlunin er unnin í samráði við hagsmunaaðila skólans og tryggir að ábyrgð og framkvæmd aðgerða sé í höndum
starfsfólks skólans, enda er það á beinu forræði skólastjórnenda. Áætlunin er lifandi skjal sem tekur breytingum eftir
þörfum og er hluti af stefnumarkandi vinnu skólans í þágu umbóta, gæða og árangurs.

bottom of page