Foreldrastarf
Hér finnur þú upplýsingar um foreldraráð og foreldrafélag leikskólans
Foreldraráð Barnabóls
Foreldraráð skipa 3 foreldrar sem kosnir eru að hausti til eins árs í senn.
Helstu hlutverk foreldraráðs eru:
-
Fjalla um og gefa umsögn til leikskólans og fræðslunefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahaldið.
-
Fylgjast með framkvæmd áætlana og að þær séu kynntar foreldrum.
-
Koma á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra til skólastjórnenda og fræðslunefndar.
-
Starfa með skólastjóra að hagsmunum barnanna og leikskólans.
Foreldraráð skólaárið 2025-2026
-
Jóhanna Ósk Guðmundsdóttir
-
Tryggvi Steinn Sigfússon
-
Sigtryggur Brynjar Þorláksson
Foreldrafélag Barnabóls
Við leikskólann er starfandi foreldrafélag og allir foreldrar barna verða sjálfkrafa félagar um leið og barnið byrjar í leikskólanum.
Markmið félagsins er að efla tengsl foreldra og kennara, auka þátttöku foreldra í starfi leikskólans og tryggja velferð barnanna sem best.
Foreldrafélagið styður með ýmsu móti við leikskólann. Hefð er fyrir því að foreldrafélagið standi fyrir grillveislu að sumri, jólaföndri eða ratleik fyrir börn og foreldra í desember og komi að skipulagningu öskudagsins í leikskólanum.. Einnig hefur foreldrafélagið styrkt leikskólann til kaupa á ýmsum kennslugögnum og leikföngum.
Stjórn foreldrafélagsins
skólaárið 2025-2026
-
Sigtryggur Brynjar Þorláksson- formaður
-
Jódís Ósk Jónsdóttir - gjaldkeri
-
Tryggvi Steinn Sigfússon- ritari
-
Jóhanna Ósk Guðmundsdóttir - meðstjórnandi
-
Emilía Hafsteinsdóttir - meðstjórnandi