top of page

1.júní 2026

Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi í 100% stöðu matráðs í móttökueldhúsi ásamt ræstingu. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við móttöku og undirbúning máltíða ásamt skipulagningu og framkvæmd daglegrar ræstingar.Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 10.ágúst.

Sækja má um rafrænt hér eða með því að senda umsókn á netfangið halldoraf@langanesbyggd.is

Menntunar- og hæfnikröfur:

 

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

  • Færni í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki

  • Snyrtimennska og stundvísi

  • Góð íslenskukunnátta

 

Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til og með  14. júní 2026

Colorful Soap Bars

22. maí 2026

Nú er opið fyrir umsóknir um leikskólapláss og hvetjum við alla foreldra og forráðamenn til að nýta tækifærið strax. Mjög mikilvægt er að sækja tímanlega um pláss til að auðvelda skipulagningu og tryggja barninu stað.

Innritun fer fram tvisvar á ári, annars vegar að hausti og hins vegar í janúar. Athugið að hægt er að senda inn umsókn  eftir að barn nær tveggja mánaða aldri. 

Við hlökkum mikið til að bjóða nýja nemendur velkomna í hópinn okkar.

Hægt er að sækja um á umsóknarvefnum okkar  hér. 

cbff8834-0d64-4fce-9ab2-851828d907c7 (1).jpg

12. maí 2026

Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma leikskólans næsta skólaár. Með því er verið að koma til móts við styttingu vinnuviku kennara og starfsfólks. 

Leikskólinn mun fylgja skóladagatali grunnskólans varðandi jólafrí og lokað verður í dymbilviku. 

Leikskólinn verður opinn:

Mánudaga til fimmtudaga frá 7:45 - 16:15 

Föstudaga frá 7:45 - 14:15

Sjá má skóladagatal 2026-2027 hér.

IMG_5673_edited.jpg
bottom of page